Vantar þig stuð?

Þú borgar minna fyrir heimahleðsluna með því að leigja stöð hjá Orkusölunni. Þú velur stöðina og við aðstoðum þig með rest. Svo einfalt er það.

Til þess að komast í Hleðslustuð Orkusölunnar þarf heimilið þitt að vera í viðskiptum hjá okkur. Ef þú ert ekki nú þegar í viðskiptum hjá Orkusölunni þá göngum við frá því þegar þú hefur valið þér hleðslustöð.

Þú getur valið þér orkuleið fyrir heimilið sem hentar þinni rafmagnsnotkun.

HleðsluOrka er vinsæl orkuleið hjá rafbílaeigendum þar sem þú færð góðan díl á heimilisrafmagninu og 20% afslátt á hleðslustöðvum um allt land!

Amina - heimahleðslustöð

Amina (990 kr./mán)

Stuðrík 7 kW hleðslustöð á aðeins 990 kr. á mánuði. Fullhleður 70 kWh rafhlöðu á u.þ.b. 10 klst.

Qudo - heimahleðslustöð

Qudo (1.990 kr./mán)

Dugmikil og sívinnandi 22 kW hleðslustöð á aðeins 1.990 kr. á mánuði. Fullhleður 70 kWh rafhlöðu á u.þ.b. 4 klst.

Garo (3.410 kr./mán)

Snjöll og fjölhæf 22 kW hleðslustöð sem tæklar öll verkefni. Aðeins 3.410 kr. á mánuði.

Hleðsluhraðinn er 7,4 kW á einum fasa (32A) en 22kW á þremur fösum (32A).

Borgar sig að leigja?
Með því að leigja hleðslustöð hjá Orkusölunni gegn vægu gjaldi greiðir þú lægri kostnað í upphafi miðað við að kaupa þína eigin hleðslustöð. Kosturinn er líka sá að rekstur stöðvarinnar, bilanir og möguleg útskipti eru á ábyrgð Orkusölunnar.
Lægra verð
Við bjóðum upp á lægra verð á hleðslulausnum í áskrift. Okkar lægsta mánaðargjald fyrir hleðslustöð er 990 kr. Gjaldið fer að sjálfsögðu eftir því hvaða hleðslustöð þú velur.
Mesta stuðið
Hleðslustuð er í boði fyrir alla viðskiptavini Orkusölunnar sem einnig kaupa raforku fyrir heimili.
Uppsetning
Í vefverslun Orkusölunnar getur þú fengið uppsetningu fyrir hleðslustöðina gegn föstu gjaldi. Uppsetningin er miðuð við ákveðin skilyrði, en í öðrum tilfellum geta ráðgjafar okkar gefið þér fast verð á uppsetningu þar sem allt er innifalið. Mjög þægilegt.
Hleðslustöðvar frá 990 kr. á mánuði

Uppsetning á hleðslustöð

Í vefverslun Orkusölunnar getur þú fengið uppsetningu fyrir hleðslustöðina gegn föstu gjaldi.

Uppsetningin er miðuð við ákveðin skilyrði, en í öðrum tilfellum geta ráðgjafar okkar gefið þér fast verð á uppsetningu þar sem allt er innifalið. Mjög þægilegt!

Fjögur skref til þess að panta hleðslustöð í áskrift: velja hleðslustöð, klára pöntun, fá stöðina afhenta og áskriftargjald er sent næstkomandi mánaðamót.

Hleðslustöðvar í áskrift

Hvernig skrái ég mig í áskrift?

  • Þú velur þá hleðslustöð sem hentar þér best
  • Þú klárar pöntunina hér á vefnum
  • Við sendum þér stöðina eða þú sækir hana til okkar
  • Næstkomandi mánaðamót sendum við þér áskriftargjaldið til greiðslu í netbanka.

Spurt og svarað