Sveigjanlegar lausnir fyrir fjölbýlið

Með Hleðslustuði Orkusölunnar greiðir fjölbýlið 3410 kr. á mánuði og íbúar geta hlaðið að vild! Frábær lausn fyrir íbúa þar sem það er hagkvæmast að hlaða heima. Allt rafmagn úr hleðslustöðvum Orkusölunnar er framleitt með 100% endurnýjanlegum orkugjöfum.

Easee heimahleðslustöð | Orkusalan

Hvað er innifalið?

  • Hleðslustöð er leigð hjá Orkusölunni gegn vægu gjaldi. Þannig greiðir fjölbýlið lægri kostnað í upphafi frekar en þegar eigin hleðslustöð er keypt.
  • Fjölbýlið fær hleðslustöð með hámarks hleðslugetu eða þriggja fasa 22kW. Þannig stöð ræður vel við álagið að hlaða í fjölbýli. Kynntu þér stöðina hér.
  • Rekstur stöðvarinnar, bilanir og möguleg útskipti er á ábyrgð Orkusölunnar.
  • Áskriftargjald er greitt mánaðarlega af íbúum (séreignarstæði) eða húsfélagi (sameignarstæði).
  • Hver og einn íbúi eða gestur hleður sinn bíl og borgar fyrir það í gegnum E1 appið.
  • Hleðslustöðvarnar eru álagsstýrðar og fasajafnaðar.
  • Hleðslustöðvarnar uppfylla öll ákvæði Húsnæðis- og mannvirkjunarstofnunar.
  • Hægt er að segja upp áskriftinni með litlum fyrirvara og er enginn binditími á henni.
Hleðslulausnir fyrir fjölbýli

Hvað þarf þá að gera núna?

  • Hafa samband við okkur í Orkusölunni og fá tilboð. Fáðu tilboð hér!
  • Sérfræðingur mætir á staðinn ásamt rafverktaka, metur aðstæður og veitir ráðgjöf.
  • Orkusalan gefur húsfélaginu tilboð í uppsetningu grunnnets.
  • Um leið og grunnnetið er komið, er pöntun lögð inn fyrir húsfélagið og íbúa um Heimastuð.
  • Sérfræðingar sjá um uppsetningu á hleðslukerfi og gefa íbúum leiðsögn um notkun.

Grunnnet

  • Grunnnet þarf að vera til staðar svo hægt sé að panta Hleðslustuð í fjölbýli.
  • Uppsetning á grunnneti er framkvæmd af rafverktaka.
  • Grunnnet í séreignaraðstæðum felur í sér breytingar á töflu og/eða heimtaug, lagnaefni og tengibúnað, lagnir að hleðslustöðvum og uppsetningu á dokkum.
  • Í sameignararaðstæðum er jarðvegsvinna einnig hluti af grunnneti.
  • Sérfræðingar Orkusölunnar veita alltaf ráðgjöf varðandi hönnun raflagna og uppsetningu grunnnets.
Easee heimahleðslustöð | Orkusalan

Hvaða stöð fær fjölbýlið?

Fjölbýlið fær uppsetta Easee stöðina. Snjöll og fjölhæf 22 kW hleðslustöð sem tæklar öll verkefni. Hleðsluhraðinn er 7,4 kW á einum fasa (32A) en 22kW á þremur fösum (32A).