Helga er nýr markaðsstjóri hjá Orkusölunni

Orkusalan hefur ráðið Helgu Beck í starf markaðsstjóra hjá fyrirtækinu. Helga útskrifaðist með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2015 og þá lauk hún MS gráðu í brand & communications management árið 2018 frá Copenhagen Business School.

Helga kemur til Orkusölunnar með áralanga reynslu á sviði markaðsmála og stefnumótunar, auk öflugs bakgrunns í stafrænum lausnum og vefþróun. Helga hefur síðustu fjögur ár starfað sem markaðs- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Nóa Síríus þar sem hennar helstu verkefni voru meðal annars stefnumótun fyrir vörumerki fyrirtækisins og greining nýrra tekjulinda. Þar áður starfaði hún í tæp þrjú ár með innflutt vörumerki Nóa Síríus.

„Við erum spennt að fá Helgu til liðs við okkur. Hún er öflugur og dýrmætur liðsstyrkur, sem sést á því starfi sem hún hefur unnið fyrir Nóa Síríus. Þekking hennar mun styrkja Orkusöluna í vegferð okkar að vera framúrskarandi í markaðsstarfi og þjónustu, auk þess að efla sköpunargleði og skýra stefnu í öllu okkar starfi. Hún mun hjálpa okkur að setja enn meiri kraft í framtíðina og koma þannig Íslandi í stuð! segir Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Orkusölunnar.

,,Markaðsteymi Orkusölunnar hefur byggt upp vörumerki sem keppir á heimsmælikvarða í sínum geira þannig að ég er ótrúlega spennt og auðmjúk að fá þetta verkefni í hendurnar. Raforkumarkaðurinn er í örri þróun með breyttum kröfum samfélagsins og aukinni samkeppni svo það verður gaman að taka þátt í þeim ævintýrum sem framundan eru,” segir Helga Beck, markaðsstjóri Orkusölunnar.